fimmtudagur, desember 08, 2011

Tónlistaruppeldi

Þarf greinilega að fara að hlusta meira á klassíska músík heima, krakkarnir voru að róta í geisla diskunum og fundu þetta verk Stabat Mater eftir Dvorak. Ég skellti því í spilarann, langt síðan ég hafði hlustað, þau heyrðu fyrstu taktana; Andri Már hljóp grátandi til pabba síns og Auður Björg grét hástöfum hjá mér, ég vonda mamman hló bara og hló.  En ég mæli alla vega með hlustun (á reyndar betur við páskana) eitt fallegasta verk sem ég hef sungið með í. 
Greinilegt að Pétur og Úlfurinn er ekki að virka í tónlistaruppeldinu þar sem að nú tengja þau klassíska tónlist bara við úlfa. Fyndið samt þau hafa aðeins verið að hlusta á Maxímús Músikús en tengja þetta einhvern veginn ekki við það. 
En ég mæli alla vega með hlustun (á reyndar betur við páskana) eitt fallegasta verk sem ég hef sungið.  

föstudagur, apríl 30, 2004

Jæja ætli það sé ekki best að reyna að koma þessari bloggsíðu aftur í gang. Við erum búin að vera voðalega löt að skrifa í vor. Ég er búin að skila inn final drafti af ritgerðinn minni þannig að nú á ég bara vonandi eftir að snurfusa hana aðeins laga heimildaskrá og svoleiðis.
Í síðustu viku tókum við okkur til og skelltum okkur á Muse tónleika í Rochester. Það var alveg rosalega gaman, þessi hljómsveit er auðvitað bara algjör snilld og eru ekki margar hljómsveitir þar sem að maður fílar öll lögin þeirra á öllum þremur diskunum sem hafa komið út.
Síðustu daga er búið að vera ofsalega gott veður og í gær fórum við loksins og hjóluðum á nýju hjólunum okkar. Ármann var reyndar búin að fara út einu sinni og vígja sitt en ég hafði ekki prófað mitt. Við fórum nú ekki langt þar sem að þetta er í fyrsta skipti sem ég nota táklemmur þannig að ég þurfti að fara frekar hægt af stað. Það er ótrúlega erfitt að venjast þessu, mér líst ekki á mig ef ég þarf að stoppa skyndilega ég á ekki eftir að muna að losa fæturna úr klemmunum og á örugglega eftir að steypast á hausinn. Ég var oft nálægt því að detta í gær og upplifa svona panic moments um að ég myndi detta úr klemmunum.
Annars er ég að byrja að sækja um vinnu og þá þarf ég auðvitað að skrifa resume, eða ferilskrá eins og það kallast víst á góðri íslensku. Það verður að viðurkennast að ég hef ekki hugmynd um hvernig á að skrifa góða ferilskrá þannig að ég fékk hjálp frá vinkonu minni hérna úti sem er nokkuð góð í því. Þetta opnaði alveg nýjar víddir hjá mér í sjálfshóli, ég hafði ekki hugmynd um að hægt væri að snúa reynslu sem manni finst ekki skipta svo miklu máli upp í eitthvað rosalega jákvætt og mikilvægt. Til dæmis að hafa unnið við það að fylgjast með einhverjum tölvum og láta vita ef eitthvað væri að í: “Acted as liaison between physics lab and computer department to ensure smooth transfer of data”. Já ég held að þessi setning fái að fjúka aðeins of ýkt!
Annars verð ég að fá að pirra mig pínulítið. Ég horfði um helgina á útsendingar frá stærstu mótmæla göngu sem hefur farið fram í Bandaríkjunum þar sem að fólk alls staðar að og á öllum aldri kom saman í Washington D.C. til þess að mótmæla stefnu Bush stjórnarinnar í málum sem koma að reproductive rights meðal annars rétt til fóstureyðinga. Þrátt fyrir að þarna væri komið saman næstum því milljón manns þá var varla fjallað um þessa göngu í fjölmiðlum og það ótrúlegasta, þá tóks einum af talsmönnum Bush nánar tiltekið Karen Huges að tengja allt þetta fólk við 11. september og hryðjuverka menn (Sjá hérna, Jon Stewart er snillingur). Er þessu fólki ekkert heilagt? Þetta fólk er svo scary að ef Bush nær kjöri í haust þá held ég að réttindi kvenna hérna séu í mikilli hættu. Því miður þá hefur þetta ekki áhrif bara í USA heldur einnig á öll þau lönd sem fá einhverja fjárhagslega aðstoð frá þeim þar sem að núna þá fá engar stofnanir pening sem á einhvern hátt fræða konur um fóstureyðingar eða hjálpa þeim að komast í samband við lækna sem framkvæma þær. Ég þarf auðvitað ekki að nefna að dregið hefur úr styrkjum til stofnana sem gera það sama hérna. Annars ætla ég að stoppa hérna, gæti haldið áfram endalaust, en nenni því ekki lengur þar sem að það er 26° hiti úti.
Jibbí sumarið er komið!!!!

laugardagur, mars 06, 2004

Jæja þar sem við erum komin á aumingjablogglistann hjá Arnóri verðum við að fara að skrifa. Það er bara óskup lítið að gerast hjá okkur, Ármann er á fullu á labinu og ég að vinna að ritgerðinni og við gerum lítið annað. Við vorum reyndar að kaupa okkur fjögra mánaða gamlan DVD spilara fyrir $25 dollara, þannig að nú get ég farið að horfa á allar Hindi myndirnar sem ég kom með frá Nepal. Svo er planið að kaupa sjónvarp í dag 27” og 10 ára gamalt á $20. Þannig að þá verðum við komin með entertainment center fyrir $45, nokkuð gott það.

Við reynum nú samt að fylgjast með öllum þeim stórmálum sem koma upp hérna vestra, svona eins og Janet Jackson og Justin Timberlake hneykslið á Super Bowl, giftingar samkynhneigðra í San Francisco, keppnin um hver verður frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum næsta haust og svo síðast en ekki síst Óskarinn.

Við horfðum auðvitað á hinn merka atburð sem Óskarinn er, eins og venjulega er þetta alveg hrikalega langdegið og lítið sem kemur á óvart. Ég verð bara að viðurkenna það að mér fannst eiginlega skemmtilegra að horfa á Joan Rivers á the red carpet heldur en Óskarinn sjálfann. Annars hafði atvikið á Super Bowl þau áhrif á óskarinn að það var fimm sekúndna seinkun á útsendingu svona ef svo illa færi að fólkið gæti ekki hagað sér siðsamlega. Ég veit nú ekki hvar þetta endar eiginlega, ætluðu þeir að stoppa af einhvern þessarar “hrikalegu” liberal leikara í að koma með einhverja pólítíska yfirlýsingu? Guð forði fólki frá því að nota málfrelsi sitt. Annars passar þetta ágætlega við það að CBS vildi ekki sýna auglýsingar sem var beint að Bush á Super Bowl (sjá sumar hérna fyrir þá sem hafa ekki séð þær )sem og auglýsingu sem styður stofnanir sem hjálpa konum að fá getnaðarvarnir og fóstureyðingu. Það er auðvitað ekkert mál að sýna Viacra auglýsingar fyrir alla aumingja CEO’s sem eru orðinr getulausir greyin eftir allt stressið sem þeir upplifa í starfinu. Einnig voru sýndar fyrir nokkru auglýsingar hérna sem tengja fóstureyðingar, snemma á lífsleiðinni, við Brjóstakrabbamein. Eitthvað sem sérfræðingar hafa komist að að er ekki stutt með ransóknum. Annars virðast Republicanar vera ákveðnir í því að gera allt til þess að gera konum erfitt að fara í fóstureyðingar, núna er Ashcroft að reyna að fá heimild til þess að skoða læknaskýrslur kvenna sem hafa farið í fóstureyðingu til þess að skoða hvort að þær hafi gert það af heilsufarsástæðum, eitthvað sem kemur honum ekkert við.

Annars virðast þessir conservatives ekki geta látið einkalíf fólks í friði samanber hvað þeir eru á móti því að samkynhneigðir geti gengið í hjónaband og fengið sömu réttindi og aðrir þegnar þessa lands. Ég var líka að heyra að í Michigan væri verið að reyna að setja lög sem gera framhjáhald ólöglegt mér finnst nú að ríkið eigi að halda sér fyrir utan svefniherbergi fólks, en það er nú bara ég.

mánudagur, desember 01, 2003

Eg er alltaf jafn slegin yfir thvi hvad thad er rosalega mikill munur a lifskilyrdum folks herna baedi a milli folks sem byr a landsbyggdinni og folks i borginni en einnig a milli ibua borgarinnar. Bara herna i Kirtipur er thetta mjog aberandi thar sem ad vid getum farid i sturtu a hverjum degi, thad er ad segja ef thad hefur verid sol thar sem ad vatnid
er hitad med solarorku, en flest folkid sem byr i kringum okkur hefur ekki rennadi vatn i husunum hvad tha heitt vatn. Flestir thurfa ad saekja vatn i brunninn hinu megin vid gotuna thar sem ad thad tharf ad bada sig, thvo thvott, og saekja vatn til neyslu. Thannig ad i hvert sinn sem eg labba thar fram hja eru konur, born og karlar ad bada sig thvo thott og saekja vatn fyrir kvoldid. Thad er lika serstakt til thess ad hugsa ad thad er folk sem fer um med einka bilstjora, notar farsima, og getur farid ad sja nyju Matrix myndina i bio a medan thad er folk sem byr i kofun vid ana og tharf ad bada sig thar, sem thydir ad thad er ad bada sig i skolpi folksins sem hefur allt. Thetta eru algjorlega tveir heimar; sem eg fekk ad upplifa nuna i vikunni thar sem ad eg var theirrar anaegju adnjotandi ad hjalpa til vid radstefnum sem fjalladi um reproductive health kvenna sem bua vid aðstæður þar sem ad rikir stridsastand. Tharna var saman komid folk fra flestum londum Asiu til thess ad reyna ad stofna til samstarfs til thess ad hafa meiri ahrif a svaedinu i motun stefnu i thessum malum. A radstefnunni var mikil ahersla logd a ad heilstaedra adgerda vaeri throf og einn af adal thattunum sem hafa ahrif a slaemar adstaedur kvenna thegar kemur ad reproductive health er fataekt. A thessari somu radstefnu kostadi maturinn fyrir hverja manneskju 2200 ruplur og radstefnan var a tveimur af flottustu hotelum i Kathmandu. Nu skulum vid bera thetta saman vid konurnar sem thessir radstefnu gestir voru liklega ad tala um, konur sem vinna vid ad hoggva til grjot til ibudabyggingar thar sem ad thaer fa um 10 ruplur fyrir hverja korfu sem thaer fylla og thaer na kannski ad fylla sex korfur a dag thar sem ad thaer thurfa ad fara langt til thess ad selja hverja korfu. Sem sagt manadarlaun upp a um thad bil 1600 ruplur. Radstefnan var audvitad ekki alvond thad er bara svo threytandi ad heyra somu hlutina aftur og aftur, somu gagnrynina sem hefur verid i gangi sidast lidin 20 ar eda svo um ad thad se mikilvaegt ad vera i tengslum vid folkid sem a ad adstoda og ad thad se naudsynlegt ad thad taki thatt i verkefninu. Thvi midur tha virdist thad vera thad eina sem margir gera their gagnryna en gera svo ekkert, fara a milli radstefna og segja somu hlutina aftur og aftur, en thad gerist ekkert. Thad er eins og allar thessar throunarstofnanir seu ekkert annad en stofnanir sem er engin leid ad breyta. Hlutunum er bara gefin ny nofn en ekkert breytitst. Fyrir utan allt thetta tha var radstefnan alveg hrikalega illa skipulogd. Thad var eins og engin vaeri viss um hvad aetti ad vera ad raeda og leggja aherslu a thannig ad thad var audvitad miklu erfidara ad komast ad einhverri nidurstodu, eg geri rad fyrir ad thad verdi gert a naestu radstefnu sem verdur liklega alveg jafn dyr. Annars var thetta god reynsla ad sja hvernig svona hlutir fara fram og thad var fullt ad folki tharna sem hafdi margt ad segja og mikla reynslu, vid verdum bara ad vona ad eitthvad ad thessu nai ad nalgast grasrotina. Thad var einnig frekar mikid ad gera i sidustu viku, eg for i atvinnumalaraduneytid sem og innflytjendaskrifstofuna og eins og venjulega tha voru engin skjol a hvorugum stadnum og tho ad thad seu tolvur til stadar tha hefur enginn gefid ser tima til ad faera thessar upplysingar inn. Ekki ad thad se eitthvad skritid midad vid hvad folk faer borgad fyrir ad vinna a thessum stodum. Eg get vel skilid ad folk geri bara akkurat thad sem thad kemst upp med og ekki meira. Annars var dalitid serstakt ad thegar eg kom i atvinnumalaraduneytid tha sa eg ad thad var eitt af theim byggingum sem hofdu verid sprengdar i Agust, eg tok eftir thvi thar sem ad eg stod fyrir utan og horfdi inn gat eg horft a folkid sitja vid skrifbordin og vinna thar sem ad veggirnir hofdu splundrast. Einni voru engir gluggar i flestum skrifstofum thar sem ad their hofdu brotnad. A manudaginn og thridjudaginn for eg i brudkaup med Banu sem er yfir programminu herna en systurdottir hennar var ad giftast. Thetta var vist typiskt Bramhin brudkaup. Vid byrjudum a thvi ad maeta klukkan 9 a manudagsmorgni til thess ad sja trulofunar athofnina og borda godan mat. Brudgumin og brudurinn skiptast a tika og blomakronsum og sitja svo hlid vid hlid a medan allir lata taka af ser myndir med theim og fedur theirra gefa ollum tika. Brudurinn og brudguminn virtust frekar stressud og þeim virtist ekki lida neitt ofsalega vel. Vid komumst lika ad thvi eftir ad hafa spurst fyrir ad thetta var brukaup sem hafdi verid skipulaggt eingongu af foreldrunum og thar med talid hverjum thau vaeru ad fara ad giftast. Thau fengu nu samt sem adur ad hittast tvisvar fyrir brudkaupid thannig ad thau voru bara nokkud heppin midad vid thad folk sem er ad hittast i fyrsta skipti a brudkaupsdaginn. Okkur finnst thetta audvitad vodalega skritid, en kannski er ekkert verra ad byrja ad kynnast eftir brudkaupid thetta fer audvitad mikid eftir thvi hvernig vid sjaum ast og hvad vid teljum vera mikilvaegt i sambondum. Audvitad er thetta samt vont thar sem ad erfitt er fyrir folk serstaklega konur ad fa skilnad thad er ad segja ef thaer eru Bramhin og chetri og ef thaer verda ekkjur ungar tha thurfa thaer ad vera i hvitu alla sina aefi og geta til daemis ekki tekid thatt i hatidar holdum thar sem ad thaer eru taldar boda ogaefu.
Vid forum ekki i trulofunarpartyid um kvoldid en naesta dag maettum vid fyrir utan hotelid til thess ad sja thegar brudgumin kemur til ad saekja brudina, vid gatum ekki verid vid sjalfa athofnina thar sem ad heillvaenlegur timi fyrir hana var klukkan 1 eftir midnaetti og vid vorum allt of threyttar til thess ad a sja thad, thetta eru lika svo rosalega langar athafnir ad tho ad thaer seu mjog ahugaverdar tha verda thaer frekar leidinlegar til lengdar.
Annars vard Liz thritug a laugardaginn thannig ad sa dagur var skipulagdur ut i ystu aesar vid byrjudum a thvi ad fara i bio klukkan 9 um morguninn, thar sem ad vid fengum 50% afslatt og thegar myndin var buin hofdum vid allan daginn fyrir okkur. Eg og Liz asamt nokkrum af Nepolsku stelpunum sem bua a hostelinu skelltum okkur a Kal Ho Na Ho sem vid vorum bunar ad bida eftir ad sja sidan vid komum hingad svo mikil var eftivaentinginn. Myndin skartar einum vinsaelasta leikar Bollywood i dag Sha Rhu Khan sem ma ekki rugla saman vid Sai fali Khan eda Shalman Khan og nei their eru ekki skildir. Sha Rhu Khan er svo mikill sjarmor ad meira ad segja allir stakarnir i bioinu aeptu og skraektu thegar hann birtist a tjaldinu. Eg aetti kannski ad taka fram ad strakar voru I miklum meirihluta i bioinu sem kom mer mjog a ovart thar sem ad eg var buin ad stimpla thessa mynd sem "stelpumynd" sem synir bara vel hvad eg tharf ad losa mig vid fastmotadar hugmyndir um kynimyndir. Til thess ad gera langa sogu stutta tha var myndin alveg frabaer og eins og venjulega tha bregst Bollywood ekki, litfogur, gribandi log dramatiskur endir sem kitladi tarakirtlana, eg held bara besta Bollywood myndin sem eg hef sed en eg hef ekki sed svo margar thannig ad kannski thydir thetta ekkert rosalega mikid. Um kvoldid var svo farid i party haldid til heidurs afmaelisbarninu og voru allir sammala um ad thad hefdi heppnast vel thar sem ad afmaelis barnid sofnadi klukkan 10 i sofanum innan um allt folkid og bar thad thess merki ad henni hlyti ad hafa lidid vel. Jaeja eg held ad eg se buin ad skrifa alveg nog. Godar stundir

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Eg aetla ad byrja a thvi ad koma med nokkrar tilkynningar. I fyrsta lagi MS i.e. mjolkursamsalan tharf ad laera ad bua til almenninlega jogurt, eg held ad Gudni kjaftur aetti ad senda nefnd til Nepal til thess ad laera ad bua til ferska thykka og bragdmikla jogurt ekki thetta thunna sull sem their selja heima. Herna getum vid skroppid ut i bud og keypt leirpott fullan thessari lika bragdgodu jogurt, ja reyndar ekki her i Kirtipur eg tharf ad fara til Kathmandu en starfsfolkid byr stundum til sina eigin jogurt sem baetir thad upp.
I odru lagi tha er straeto kerfid her i Kathmandu alveg frabaert, eg fer bara ut a horn herna i Kirtipur og bid i mesta lagi i fimm minutur og straeto er kominn. Straetoin fra Kirtipur fer inn i midbaein og svo er haegt ad taka adra i allar attir. Thad er lika haegt ad velja um nokkrar gerdir ad farartaekjum til thess ad ferdast innan borgarinnar, thad eru audvitad venjulegir straetoar, svo eru thad minibuses sem eru eins og sendibilar thar sem ad haegt er ad troda um thad bil tolf manneskjum ef ekki fleiri, madur heldur ad thad komist ekki fleiri fyrir en their baeta alltaf fleirum inn. Sidan er einnig haegt ad taka Tuk Tuk en thad eru thrihjola bilar sem eru umhverfisvaenir og taka um thad bil 8 manns. Ef madur er mjog efnadur tha er haegt ad taka leigubil og i raun eru their ekki mjog dyrir 250 fra midborginni til Kirtipur sem er alla vega half tima ferd. Ef madur er adeins niskari tha er haegt ad taka Rickshaw sem eru adeins odyrari en leigubilar en eg maeli ekki med theim fyrir langar vegalengdir thar sem ad thad eru engir demparar og goturnar i Kathmandu eru ekki mjog godar if you get my drift. Flestir leigubilarnir eru litlir bilar, sem er gott thar sem ad thad er svo mikil mengun herna, thad er dalitid serstakt ad einu storu bilarnir suv´s eru i eigu INGO’s og NGO’s thaer stofnanir sem aettu ad vera medvitadar um umhverfid og reyna ad nota umhverfisvaenni farartaeki.
Fyrst ad eg er byrjud a yfirlysingunum tha er her ein I vidbot: Eg dyrka Hindi myndir, audvitad eru thaer mismunandi en thad er eitthvad heillandi vid ad horfa a spennumynd med gedveikt macho hetjum sem allt i einu fara ad syngja alveg hrikalega vaemin log. Allt folkid er audvitad alveg ofsalega fallegt og their eru sko ekkert feimnir vid ad vidurkenna ad thad er thad sem skiptir mali thar sem ad flestir leikararnir geta ekki sungid og thykjast bara syngja. Thad er dalitid ahugavert ad i flestum thessara mynda eru karlar alveg eins hlutgerdir og konur eins og konurnar eru their bara tharna til thess ad vera fallegir, thad eru alls konar skot ad korlum sem eru ad dansa I rigningu rennblautir og hristandi hausinn eins og their eigi lifid ad leysa og their syna orugglega alltaf adeins betri hlidina. Eg veit ekki alveg hvort ad thad se eitthvad betra ad baedi karlar og konur seu hlutgerd en thad er alla vega svona i nuinu, adur en madur fer ad hugsa um hvad thessar myndir eru hladnar stadalymindum, er einhvers konar anaegja ad sja menn hlutgerda eins og konur. Eg horfdi meira ad segja a Hindi hryllingsmynd um daginn, ymindid ykkur Scream fyrir utan thad ad folkid talar Hindi, byr a Indlandi, og af og til byrja adalsoguhetjurnar ad syngja og dansa. Jaeja eg skil ykkur eftir med thessa mynd i kollinum.
Godar stundir

miðvikudagur, október 29, 2003

Af mer er allt gott ad fretta, thad er buid ad vera heilmikid um ad vera um
helgina thar sem ad Tihar onnur staersta hatid Hindua herna er buin ad vera i gangi sidan a fimmtudaginn. Fyrsti dagurinn er fyrir krakur, thad er ad segja thau tilbidja krakur vegna thess ad thaer takna daudann. Naesti dagur er svo til thess ad tilbidja hunda en their eru standa vord um hlid daudans. Vid gerdum ekki mikid fyrsta daginn nema ad fara til Kathmandu til ad kaupa ymislegt dot til thess ad geta gert puja, eda tilbedid hundana daginn eftir. Thad er ad segja Liz keypti dot fyrir hundana thar sem ad hun er mikill hundavinur og hefur eiginlega tekid ad ser alla hundana her i Kirtipur. Eitt sem eg hef kannski ekki minnst a eru allir villihundarnir herna i Kirtipur, their eru lika i Kathmandu ut um allt. Their liggja fyrir utan verslanirnar og heimahus og fa mat sem folk hendir. Their eru ekki notadir i neitt og eru ekki gaeludyr en einhvernveginn lifa their af. Thad er dalitid fyndid ad alltaf thegar eg les lysingar a truar hatidum eda einhvers konar hatidum tha virdist allt vera svo gamallt og ekkert hefur breyst thad er dalitid eins og folkid sem verid er ad tala um se fast i akvednu tima skeidi. Aftur a moti thegar eg gekk um gotur Kathmandu og sa alla hlutina sem voru til solu til thess ad
audvelta folki undirbuninginn fyrir hatidina tha ser madur hvad hlutirnir hafa breyst. Alls stadar var folk ad selja blomakransa sem eru notadir til thess ad gefa tika og saelgaetid og avextirnir sem er gefid sem forn faest tibuid i pokkum thannig ad folk getur keypt allt i einu. Kathmandu var mjog litfogur og skemmtileg yfir hatidirnar oll hus skreytt med blomum og ljosum og endalaus fjoldi af folki ad undibua hatidina. Thetta var eins og Thorlaksmessa heima a Islandi nema audvitad miklu fleira folk og auk jola ljosana voru blom hangandi a husunum, bilum og dyrum. Daginn eftir voknudum vid snemma til thess ad gefa hundunum tika (raudur punktur a ennid) og tilbidja tha. Vid byrjudum a thvi ad gefa hundunum tika og svo settum vid blomakrans um halsinn a theim og ad lokum gafum vid theim hrisgrjon og kjot ad borda a laufdiskum. Thetta var mjog skemmtilegt og ahugavert alls stadar thar sem vid forum voru blomaskreyttir hundar, eg held ad their hafi bara haft gaman ad thessu thar sem ad their fengu fullt af mat. Allan laugardaginn voru krakkar og alls konar klubbar ad koma i heimsokn og syngja og dansa fyrir okkur til thess ad fa pening, saelgaeti og avexti. Vid urdum audvitad ad dansa lika thannig ad vid gerdum okkur ad fiflum en eg er svo sem ordin von thvi thar sem ad eg geri thad bara med thvi ad ganga um goturnar herna, thad er ad vera utlendingur. A sunnudaginn hjalpudum vid til vid hrisgrjona uppskeruna thad er ad segja med thvi ad skera nidur litinn hrisgrjonakur i eigu CNSP. Thad var mjog gaman en frekar erfitt thar sem ad eg er ekki von thessari hreyfingu, vid notudum sigd til thess ad skera nedst a plontunni og sofnudum thvi i bunka og svo thurftum vid ad threskja grjonin af plontunni. Grjonin eru svo thurkud i solinni og svo send i myllunna til thess ad thar sem ad hidid er unnid i burtu. Vid audvitad drukkum te i pasum og svo fengum vid bjor og eitthvad Nepalskt vin sem var alveg agaett, vid hefdum audvitad att ad fa hrisgrjona bjor eda chang eins og thad er kallad en thad var ekki til thannig ad vid urdum ad saetta okkur vid Tuborg og San Miquel en thad auk Carlsberg er eini bjorinn sem haegt er ad fa herna. Thetta var alla vega i fyrsta skipti sem eg hef fundid a mer fyrir hadegi en thar sem ad eg er ekki i mikilli aefingu tha tharf eg ekki mikid til thess ad verda naestum thvi drukkinn. I dag er eg ad borga fyrir manudaginn thar sem ad eg thurfti ad borda mat sem eg hefdi aldrei bordad annars og nuna er eg ad drepast i maganum. Dagurinn var samt mjog skemmtilegur og ahugaverdur. Thessi dagur er kalladur Bhai Tika thad er brodur Tika og a thessum degi tilbidja systur braedur sina. Eg og Liz forum til konu sem vid hofum kynnst her i Kirtipur til thess ad sja hvernig thetta fer fram. Thessi kona lifir vid nokkud serstakar adstaedur thar sem ad hun hljopst a brott med eiginmanni sinum sem er ekki algengt a medal Newari en thad er ethniskur hopur sem eru Hinduar og eru frumbyggjar Kathmandu dalsins. Nu er thad thannig tho ad madurinn hennar byr og vinnur i Pokhara og hun byr hja fjolskyldu sinni ekki hans. Hann sendir ekki pening heim til thess ad stydja hana og tvaer daetur thannig ad hun er i raun ein a bati. Ja hun er reyndar ekki ein a bati thar sem ad hun byr hja eldri og yngri mommu sinni en thad thydir ad fadir hennar var giftur tveimur konum og svo bua alla vega thrjar systur hennar tharna sem og einn yngri brodir. Alla vega tha fengum vid ad sja alla athofnina og taka thatt i henni sem var svolitid skritid og svo audvitad urdum vid ad borda allt sem var borid fyrir okkur.
Eg er buin ad skrifa allt of mikid eins og venjulega thannig ad eg laet thetta duga.

miðvikudagur, október 15, 2003

Thad er gott ad vera komin aftur til Kirtipur og geta byrjad ad vinna ad
krafti, kominn timi til. Ferdin gekk vel vid flugum til Lukla en thad er 40 minutna flug thangad fra Kathmandu. Flugvollurinn thar er mjog serstakur thar sem ad hann er i halla thannig ad thad hjalpar flugvelunum sem eru ad lenda svo ad thaer thurfa ekki svo mikid plass sem og flugvelunum sem eru ad taka a loft thar sem ad thaer fara nidur hallann og svo ut i dalinn. Vid vorum sex i hopnum sem forum i gonguna Eg, Amanda, Liz sem er resident coordination hja CNSP, Jan sem er ad gera doktorsrannsokn a fullbright styrk, Steve sem er ad gera mastersrannsokn i acriculture fra Cornell og konan hans Nicole. Steve, Nicole og Amanda eru ekki komin heim, Amanda aetlar ad fara eins langt og hun kemst en hun tharf ad koma aftur thann 12. Steve og Nicole aetla til Base Camp og svo halda afram og fara hring sem virdist vera mjog skemmtileg ganga. Ferdin heppnadist mjog vel, vid fengum gott vedur allann timann og storkostlegt utsyni. Vid byrjudum a thvi ad ganga fra Lukla nidur til Phading sem tok adeins thrja tima. Umhverfid var mjog olikt thvi sem eg sa i Mustang thar sem ad allt var mjog bert, i stadin voru hlidarnar skogi vaxnar og mikill grodur. Eg var audvitad svo heppin ad vakna med kvef og hosta fyrsta daginn og eg var liklega med einhvern hita sum kvoldin. Eg fann mest fyrir slappleika snemma a morgnanna thegar eg var ad byrja ad ganga og svo seint a kvoldin sem betur fer tha var eg betri thegar lida tok a daginn og eg nadi ad hitna. Annars var eg i alveg agaetu formi, madur tharf audvitad ad passa sig ad fara ekki of hratt vegna haedarinnar svo ad madur fai ekki altitude sickness. Gangan var erfid, eg held ad eg hafi gengid a esjuna svona tiu sinnum thessa atta daga en thad var svo gott ad finna likamann reyna a sig og vera i svona storkostlegu umhverfi. Eg aetla ad reyna ad fara i dags gongur um Kathmandu dalinn um helgar til thess ad halda mer i formi og svo gongutura i Kirtipur thess a milli. Svo eg haldi afram med ferdasogunna vid endudum seinni daginn i Namche Bazar sem er i raun midstod ferdamanna a thessu svaedi thorpid er fullt af gistiheimilum og thad er meira ad segja haegt ad kikja a email thar en thad kostar samt 20 rs a minutuna svo ad madur eydir ekki miklum tima a netinu. Vid thurftum ad eyda einum degi i Namche til thess ad venjast haedinni thannig ad vid forum i dagsgongu yfir i thorp sem heitir Kumjhung utsynid var storkostlegt og eg sa Everest i fyrsta skipti. Thad var samt thad langt i burtu ad eg sa bara thrihyrnings laga toppinn Lahotze og Ama Dablan voru fyrirferdameiri thar sem ad thau eru naer, Ama Dablan er mjog fallegt, litur ut eins og Buddha i hugleidslu eda Svinxinn eftir thvi hvernig litid er a thad. Vid lentum i dalitid serstokum umraedum thennan dag. Daginn eftir forum vid til Thangboche sem er i raun Klaustursstadur umkringdur gistiheimilum. Vid reyndar gistum i litlu thorpi 20 minutur i burtu thar sem ad skolpkerfid i Thangboche tholir ekki mikinn fjolda af folki. Thetta var agaetis gistiheimili nema ad kamarinn var frekar ogedslegur thannig ad naesta dag heldum vid adeins afram upp og gistum i Pangboche. Planid var ad fara til Pheriche nema ad eg var svo slopp af kvefinu og hosta ad eg akvad ad fara ekki langt afram og vera svo bara i Pangboche og slappa af. Vid tokum svo tvo daga i ad fara til baka til Lukla fyrst fra Panboche til Namche Bazar og svo thadan til Lukla. Thetta voru miklu lengri dagar en eg bjost vid og erfidari ganga eg var buin ad gleyma ad vid hofdum farid nidur nokkud brattar hlidar lika ekki bara upp a moti. Thad sem mer fannst kannski serstakt vid ferdina fyrir utan storkostlegt umhverfi var hvad thad voru margir ferdamenn a leidinn thad var eiginlega alltof mikid af theim. Thad var lika otrulegt hvad fair baru sina eigin bakpoka, flestir vorum med burdarmenn og gengu bara med dagpoka. Thad vaeri kannski i lagi ef folk vaeri med edlilegan farangur, en sumir burdarmennirnir voru ad bera kannski 70kg fyrir tvo einstaklinga og their voru ekki bara med bakpoka heldur hjolatoskur og duffel bags. Thad voru lika mjog storir hopar sem ferdudust med tjold og thad er sko ekki haegt ad sitja a jordinni thannig ad burdarmenn voru ad flytja upp stola og bord svo folkid gaeti nu setid almennilea. Yak Uxar voru einnig notadir til ad flytja upp alls konar drasl baedi fyrir ferdamenn og almennar birgdir. Burdarfolk var lika ad bera almennarbirgdir a milli stada alls konar naudsynjar thar sem ad thad er ekki haegt ad flytja neitt tharna upp eftir a annan hatt. Uxarnir juku spennuna i ferdinni til muna thar sem ad madur vildi ekki verda fyrir theim thegar their foru framm hja thannig ad madur reyndi ad vera sem lengst fra theim. Jaeja eg aetla ekki ad hafa thetta lengra ad sinni. Eg hef ekki getad
komist i tolvu fyrr en nu thar sem ad talvan her hefur verid med eitthvad
vesen en thad aetti allt ad vera komid i lag nuna.